Átt þú falinn fjársjóð á netinu?

Átt þú falinn fjársjóð á netinu?

September 22, 2010  |  Blog

Ég hef mikið verið að skoða vefverslanir undanfarið og læt hérna fylgja með þessum pósti kynninguna mína sem ég var með á morgunverðarfundi TM Software í vor um vefverslanir. Nýlega birtist frétt um þetta í Morgunblaðinu og á vef TM Software og ég mér þykir rétt að það komi fram að kynningin er byggð á rannsókn sem Hagstofan gerði í apríl 2009, en það gleymdist að geta þess í fréttinni.

Átt þú falinn fjársjóð á netinu?

Annars tók ég góða syrpu núna í ágúst og verslaði svolítið á netinu í sumarfríinu og hérna á eftir eru mín TOPP 5 atriði sem góðar vefverslanir þurfa að uppfylla.

1. Elska alla kúnna jafnt

Ekki gera upp á milli kúnnanna þinna eftir því í hvar þeir búa. Jafnvel þó að þú getir ekki sent vörurnar út um allan heim átt þú að geta tekið við öllum greiðslukortum og viðskiptavinum frá öllum heimshornum. Viðskiptavinirnir hafa oft ýmsar leiðir til að nálgast sendinguna t.d. með því að láta senda þær til vina eða ættingja sem geta komið vörunni til skila eða áframsent á réttan áfangastað.

2. Sjá allar vörur

Það getur verið hin mesta tímasóun að vafra í búðir og það sama á við um illa útfærðar vefverslanir. T.d. leiðist mér fátt jafn mikið og þurfa endalaust að vera fletta á milli síðna til að skoða vöruúrval. Ég nota alltaf “Show all” ef það er í boði og lágmark vil ég geta skoðað amk 100-200 vörur á einni síðu og takmarkað birtingu vara eftir öllum mögulegum eiginleikum t.d. tegund, stærð, lit.

3. Geyma vörur í körfu

Það er sjaldnast skyndiákvörðun sem ræður því að maður verslar á netinu. Oft eiga kaupin sér stað eftir að viðskiptavinur er búinn að grandskoða alla möguleika og vörur sem í boði eru. Þess vegna er gott að leyfa viðskiptavini að geta gengið að körfunni sinni á vísum stað með þeim vörum sem búið var að safna í körfuna – óháð því hvort viðskiptavinur er með skráðan reikning hjá verslun eða ekki. Ef lagerstaða breytist og varan er að seljast upp er gott að láta kúnnann vita t.d. með því að birta upplýsingarnar um lagerstöðu með vörunni.

4. Góðar myndir af vörum

Upplýsingar um vörurnar þurfa að vera nákvæmar og fullnægjandi og góðar myndir þurfa að fylgja vöru frá öllum sjónarhornum. Ef vara er til í mörgum litum er nauðsynlegt að hver litur sé sýndur frá öllum sjónarhornum og hægt sé að zoom-a inn og sjá áferð og önnur smáatriði.

5. Senda vörur daginn eftir

Ég dýrka verslanir sem ábyrgjast afhendingu á vörum daginn eftir og mér finnst vel þess virði að greiða aukalega fyrir þessa þjónustu.

Popularity: 35%



Comments are closed.

Recent Posts
eCommerce Trends of UK Fashion Retailers

eCommerce Trends of UK Fashion Retailers

09/23/2010 • Here are a few slides that I put together that show some obvious trends on eCommerce site of UK fashion...Read More

Átt þú falinn fjársjóð á netinu?

Átt þú falinn fjársjóð á netinu?

09/22/2010 • Ég hef mikið verið að skoða vefverslanir undanfarið og læt hérna fylgja með þessum pósti kynninguna mína sem ég...Read More

Holiday pictures on Flickr

Holiday pictures on Flickr

08/27/2010 • The pictures from our holiday in Suffolk are now available on Flickr. This time it was quite eventful and included...Read More

Deiglan.com nominated for the Icelandic Web awards 2009

Deiglan.com nominated for the Icelandic Web awards 2009

08/25/2010 • I've been largely responsible for the design and development of Deiglan.com for the past five years.  In February this year...Read More